26.10.09 - 11:05
Magnús Már Einarsson
Gordon Strachan tekur við Middlesbrough (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gordon Strachan hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Middlesbrough en hann verður formlega kynntur til sögunnar á fréttamannafundi síðar í dag.
Þessi 52 ára gamli Skoti tekur við Middlesbrough af Gareth Southgate sem var rekinn í síðustu viku.
Strachan hefur áður stýrt Coventry og Southampton á Englandi en hann hefur verið án félags síðan hann hætti hjá Celtic í maí.
Middlesbrough féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en liðið er núna í fjórða sæti í Championship deildinni.

Heimild: BBC