Fotbolti.net
27.01.09 - 13:38
Magnús Már Einarsson

Kristján Finnbogason í Gróttu (Staðfest)

Kristján Finnbogason í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Kristján Finnbogason markvörður KR hefur samið við Gróttu og mun hann leika með liðinu í 2.deildinni í sumar.
Kristján, sem er borinn og barnfæddur Seltirningur, mun því enda feril sinn hjá uppeldisfélagi sínu Gróttu. Kristján fór yfir til KR þegar hann var 11 ára en hann lék einnig handbolta með Gróttu fram undir tvítugt.

Þessi 37 ára gamli leikmaður lék fimm leiki með KR síðastliðið sumar en hann var þá varamarkvörður liðsins.

Kristján lék í tvo ár með ÍA á sínum tíma en hann lék einnig með Ayr United í skosku úrvalsdeildinni og með Lommel í Belgíu.

Á ferli sínum hefur Kristján leikið 265 leiki í efstu deild og þá á hann að baki 20 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann hefur orðið sex sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum orðið bikarmeistari með þeim félögum sem hann hefur leikið með.

Ásamt því að verja mark Gróttuliðsins mun Kristján sjá um alla markmannsþjálfun hjá félaginu.

Heimild: Heimasíða Gróttu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.