27.01.09 - 15:08
Hafliði Breiðfjörð
Þórunn Helga til liðs við Santos í Brasilíu að nýju (Staðfest)

Þórunn Helga í leik með Santos.

Mynd: Pedro Ernesto Guerra Azevedo

Þórunn Helga í leik með Santos.

Mynd: Pedro Ernesto Guerra Azevedo

Þórunn Helga Jónsdóttir varnar- og miðjumaður KR er gengin til liðs við brasilíska félagið Santos að nýju og verður hjá félaginu fram í apríl. Frá þessu var greint á vefsíðu KR í dag.
Þórunn Helga varð bikarmeistari með félaginu skömmu fyrir jól en hún hafði gengið til liðs við félagið um sex vikum áður til að leysa skarð leikmanna sem fóru á Heimsmeistarmót U20 ára landsliða. Hún þótti hinsvegar standa sig það vel að hún hélt sæti sínu eftir að leikmennirnir sneru aftur.
Næsta verkefni bikarmeistaranna er keppni sem heitir \"Liga Nacional de Futebol Feminino\". Þetta er keppni 32 félaga sem hefst á sunnudag.
Þrátt fyrir nafnið stendur keppnin stutt. Hún hefst 1. febrúar og verður leikið annan hvern dag til 13. febrúar þegar úrslitaleikurinn fer fram. Dregið verður í riðla á föstudag.

Heimild: Vefsíða KR