Fotbolti.net
27.01.10 - 13:18
Magnús Már Einarsson

Símun Samuelsen farinn frá Keflavík - Fer til Færeyja (Staðfest)

Símun Samuelsen farinn frá Keflavík - Fer til Færeyja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L

Símun Samuelsen er farinn frá Keflavík en hann er að ganga til liðs við félag í heimalandi sínu Færeyjum. Símun er færeyskur landsliðsmaður en þessi 24 ára gamli leikmaður kom til Keflavíkur sumarið 2005.
,,Við höfum komist að samkomulagi við Simun að hans ósk að fara frá Keflavík til að leita sér að liði í Færeyjum af persónulegum ástæðum vegna unnustu og barns,\" sagði Þorsteinn Magnússon formaður og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur við Fótbolta.net í dag.

,,Hann má finna sér lið sem semur svo við okkur. Eðlilega vildum við þetta ekki en það er öðruvísi þegar men setja fyrir sig persónulegar ástæður. Þá verðum við að virða það. Þó hefðum við ekki viljað missa þennan dreng, hann er toppleikmaður og topp piltur. Vonandi á hann eftir að spila með Keflavík einhvern tíma síðar í framtíðinni.\"

Undanfarin ár hefur Símun verið lykilmaður hjá Keflvíkingum en hann skoraði þrjú mörk í átján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

Sameiginleg yfirlýsing knattspyrnudeildar

Keflavíkur og Simun Samuelsen

Knattspyrnudeild keflavíkur og Simun Samuelsen hafa komist að samkomulagi um að Simun fari frá Keflavík til heimalands síns, Færeyja, að ósk Simuns vegna persónulegra ástæðna.

Knattspyrnudeildin þakkar Simun kærlega fyrir þau tæplega fimmm ár sem hann hefur verið hjá Keflavík og óskar honum alls hins besta á nýjum vettvangi.

Knattspyrnudeild Keflavíkur og Simun Samuelsen

Virðingarfyllst.
f.h. Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Þorsteinn Magnússon

Virðingarfyllst.
Simun Samuelson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.