Fotbolti.net
27.01.10 - 15:15
Magnús Már Einarsson

Giovani dos Santos til Galatasaray (Staðfest)

Giovani dos Santos til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Galatasaray hefur fengið Giovani dos Santos á láni frá Tottenham út þetta tímabil og tyrkneska félagið á síðan möguleika á að kaupa hann í sumar.
Dos Santos hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Tottenham síðan að hann kom til félagsins frá Barcelona á 4,7 milljónir punda sumarið 2008.

Þessi tvítugi Mexíkói var við liðið hjá Barcelona en hjá Spurs hefur hann fengið að spila lítið sem ekkert og á þessari leiktíð hefur hann einungis komið við sögu í þremur leikjum.

Dos Santos var í láni hjá Ipswich undir lok síðasta tímabils og Roy Keane hafði áhuga á að fá hann aftur á láni en Galatasaray hafði betur í baráttunni.

Galatasaray hefur leitað til Englands í leikmannakaupum undanfarið en félagið fékk Lucas Neill frá Everton fyrr í mánuðinum sem og framherjann Jo á láni frá Manchester City.

Síðastliðið sumar fékk Galatasaray einnig miðjumanninn Elano frá Manchester City en hjá félaginu eru einnig Harry Kewell og Milan Baros sem léku áður á Englandi.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.