27.01.10 - 14:23
Jóhann Óli Eiðsson
Yildiray Basturk til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Yildiray Basturk, 31 árs gamall Tyrkneskur landsliðsmaður, er gengin til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Blackburn Rovers á láni út tímabilið frá þýska liðinu Stuttgart.
Basturk hefur leikið í fjórtán ár í þýsku úrvalsdeildinni með liðum á borð við Bochum, Leverkusen, Hertu Berlin og nú síðast Stuttgart.
Hann var partur af liði Leverkusen sem lék til úrslita í meistaradeildinni 2002 en liðið tapaði gegn Real Madrid.
Auk þessa hefur hann leikið 49 leiki fyrir Tyrkland og var í bronsliðinu á HM2002. Hann er þó hættur að leika með landsliðinu vegna illinda milli hans og þjálfarans.

Heimild: BBC