27.01.10 - 14:01
Magnús Már Einarsson
Zoran Tosic til Köln á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Köln hefur fengið serbneska kantmanninn Zoran Tosic á láni frá Manchester United.
Tosic kom til United frá Partizan Belgrad fyrir ári síðan en hefur ekki fengið mörg tækifæri og á þessari leiktíð hefur hann einungis komið við sögu í tveimur leikjum í enska deildabikarnum.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur þó ennþá trú á að hann eigi framtíð fyrir sér á Old Trafford.
,,Ég hef ekki trú á að ég sé búinn að segja mitt síðasta hjá Manchester United,\" sagði Tosic.
,,Vonandi mun frammistaða mín hjá Köln hjálpa mér að komast aftur á Old Trafford.\"

Heimild: Sky