Fotbolti.net
27.01.10 - 17:02
Magnús Már Einarsson

Nicky Weaver til Burnley (Staðfest)

Nicky Weaver til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur gert samning við markvörðinn Nicky Weaver en hann kemur frítt til félagsins.
Weaver fór frá skoska félaginu Dundee United fyrr í mánuðinum og var því án félags.

Weaver æfði með Middlesbrough en fékk ekki samning þar. Burnley kom þá inn í myndina og samdi við þennan þrítuga leikmann.

Á sínum tíma lék Weaver með Manchester City í tíu ár en hann var einnig á mála hjá Charlton Athletic og Sheffield Wednesday.

Líklegt er að Weaver verði í leikmannahópi Burnley þegar að liðið fær Chelsea í heimsókn á laugardaginn.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.