27.01.10 - 16:06
Magnús Már Einarsson
Quincy Owusu-Abeyie til Portsmouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur fengið framherjann Quincy Owusu-Abeyie á láni frá Spartak Moskvu út þetta tímabil.
Portsmouth fékk félagaskiptabanni sínu aflétt í gær og knattspyrnustjórinn Avram Grant var fljótur að nýta sér það með því að krækja í Owusue-Abeyie.
Þessi 23 ára gamli leikmaður var áður á mála hjá Arsenal en hann hefur verið í herbúðum Spartak Moskvu frá því 2006.
Owusu-Abeyie hefur ekki verið fastamaður hjá rússneska liðinu en hann hefur samtals leikið minna en 30 leiki með liðinu.
Owusu-Abeyie þekkir vel að fara á láni því þegar að hann var hjá Arsenal fór hann til Cela Vigo, Birmingham og Cardiff á láni.
Líklegt er að leikmaðurinn spili sinn fyrsta leik með Portsmouth gegn Manchester City á laugardag.

Heimild: Sky