27.01.10 - 19:27
Alexander Freyr Tamimi
Brian McDermott ráðinn stjóri Reading (Staðfest)

Brian McDermott hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Reading.

Mynd: Getty Images

Reading hefur ráðið Brian McDermott í stjórastöðu liðsins til tólf mánaða en hann hefur stýrt liðinu til bráðabirgða síðan Brendan Rogers var rekinn frá félaginu þann 16. desember. Undir stjórn McDermott hefur Reading lagt bæði Liverpool og Burnley af velli í bikarnum en liðið er þó enn án sigurs í fimm leikjum í deildinni.
John Madejski stjórnarformaður Reading sagði: „Ég hef alltaf haft mikla trú á Brian. Það starf sem hann hefur unnið síðan hann tók við liðinu staðfestir einungis það sem ég vissi nú þegar.“
„Hann hefur stýrt liðinu vel á erfiðum tíma og þessi ákvörðun var byggð á því starfi sem hann hefur unnið, bæði sem knattspyrnustjóri og svo í öðrum hlutverkum undanfarin tíu ár hérna.“
Sjálfur var McDermott í skýjunum yfir ráðningunni.
„Ég er himinlifandi með að hafa verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá félagi sem á sér stóran stað í hjarta mínu og ég vil þakka stjórnarformanninum. Samband okkar hefur verið mjög gott í mörg ár,“ sagði hann.

Heimild: BBC