Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, vonast til að Raul Jimenez nái að snúa aftur á fótboltavöllinn á þessu tímabili.
Hinn 29 ára gamli Jimenez höfuðkúbubrotnaði eftir samstuð við David Luiz í leik gegn Arsenal þann 29. nóvember.
Hinn 29 ára gamli Jimenez höfuðkúbubrotnaði eftir samstuð við David Luiz í leik gegn Arsenal þann 29. nóvember.
Mexíkóinn fór í aðgerð daginn eftir leikinn og bati hans hefur verið góður. Nuno vonast til að sjá hann spila meira á tímabilinu.
„Við erum jákvæðir á að það geti gerst. Hann er að standa sig virkilega vel," sagði Nuno.
Athugasemdir