Fotbolti.net
27.02.07 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Prince Rajcomar í Breiðablik (Staðfest)

Prince Rajcomar í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Framherjinn Prince Rajcomar hefur gert samning við Breiðablik út þetta tímabil en þetta staðfesti Ólafur Björnsson í meistaraflokksráði félagsins við Fótbolti.net í dag.
Prince sem er hollenskur er væntanlegur til Íslands á laugardaginn en þessi 22 ára leikmaður hefur meðal annars leikið fyrir U-20 ára landslið Hollendinga á ferli sínum.

Prince lék einnig meðal annars með Utrecht í úrvalsdeildinni í Hollandi tímabilið 2004/2005.

Hann hefur einnig leikið með Fortuna Sittard og FC Den Bosch í næstefstu deild í Hollandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.