Fotbolti.net
27.02.09 - 08:06
Davíð Örn Atlason

Davíð Ellertsson og Magnús Helgason í Víking (Staðfest)

Davíð Ellertsson.

Davíð Ellertsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Davíð Ellertsson og Magnús Helgason gengu í gærkvöldi í raðir Víkinga. Davíð frá Haukum, en Magnús frá KR og sömdu þeir báðir til ársins 2010.
Davíð verður 28 ára gamall á þessu ári og hefur hann verið í herbúðum Hauka undanfarin fimm ár. Hann hefur leikið mest sem vinstri bakvörður, en getur leyst ýmsar aðrar stöður líka.

Davíð hefur leikið 95 leiki fyrir Hauka á þessum árum sem hann hefur verið þar og skorað sjö mörk.

Magnús Helgason verður nítján ára gamall á árinu og er varnarmaður. Magnús er gjaldgengur í annan flokk ennþá og gæti hann spilað nokkra leiki með öðrum flokki í sumar.

Heimild: Víkingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.