27.02.09 - 11:11
Magnús Már Einarsson
Gylfi Þór til Crewe á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Þórðarson stjóri Crewe hefur fengið miðjumanninn Gylfa Þór Sigurðsson til félagsins á láni frá Reading en þetta kemur fram á vefsíðu Morgunblaðsins.
Í haust var Gylfi Þór á láni hjá Shrewsbury í einn mánuð en hann hefur fengið fá tækifæri með aðalliði Reading.
Þessi U21 árs landsliðsmaður hefur hins vegar leikið með varaliðinu hja Reading og meðal annars verið fyrirliði þar.
Gylfi mun hoppa beint inn í leikmannahóp Crewe fyrir leik liðsins gegn Brighton á morgun.
Sá leikur er mikilvægur fyrir Crewe sem er í 22.sæti í ensku fyrstu deildinni með 31 stig en Brighton er sæti ofar með 32 stig.

Heimild: Morgunblaðið