Fotbolti.net
27.02.09 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð

Viktor Bjarki Arnarsson til Nybergsund (Staðfest)

Viktor Bjarki í leik með KR í sumar.

Viktor Bjarki í leik með KR í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Viktor Bjarki Arnarsson er genginn í raðir norska félagsins Nybergsund frá Lilleström en þetta var staðfest á vefsíðu síðarnefnda félagsins nú í dag. Nybergsund leikur í norsku 1. deildinni.
Viktor Bjarki hefur fengið fá tækifæri hjá Lilleström síðan hann gekk í raðir félagsins árið 2006 og var lánaður til KR á síðustu leiktíð. Meiðsli hafa einnig átt þátt í að hann hefur ekki spilað með liðinu.

Hann fór svo aftur utan til æfinga hjá nýjum þjálfara félagsins, Henning Berg, en náði ekki að vinna sér sæti í leikmannahópnum sem fór í æfingaferð á dögunum og þar með þótti ljóst að hann færi annað.

,,Ég hef bara heyrt jákvæða hluti um Nybergsund og ég veit að þeir koma til með að keppa um toppsætið í Adeccoligaen á næsta tímabili. Ég er ánægður með að fara þangað,\" segir Viktor Bjarki á vefsíðu Lilleström í dag.

,,Mér hefur þótt Viktor vera mjög faglegur. Hann hefur orðið úti því við erum með stóran hóp og hann hefði ekki fengið mikinn spilatíma hjá okkur. Hann hefur lagt hart að sér í vetur og tekið framförum sem fótboltamaður. Viktor er fótboltamaður með marga góða kosti,\" sagði Henning Berg á vefsíðu Lilleström.

Heimild: Vefsíða Lilleström | Vefsíða Lilleström (2)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.