Fotbolti.net
27.03.07 - 12:25
Margrét Lára Viðarsdóttir

Marika Domanski-Lyfors tekin við kvennalandsliði Kína (staðfest)

Marika Domanski-Lyfors tekin við kvennalandsliði Kína (staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Svíinn Marika Domanski-Lyfors hefur verið ráðinn þjálfari kvennalandsliðs Kína eftir slæmt gengi liðsins á Algarve mótinu í Portúgal. Þar lenti liðið í 10 sæti eftir að hafa tapað öllum leikjum sínum. Marika kunn hafa gert metsamning með rúmar 36 milljónir íslenskra króna.
,,Það er enginn fastur tími komin á þetta ennþá en ég mun mjög fljótlega fara til Peking í augliti til auglitis samningarviðræður" Sagði Marika fyrir helgi en hún skrifaði undir samninginn í Peking á sunnudag.

Hún hélt áfram ,,Mínar viðræður við kínverksa sambandið til þessa hafa verið mjög góðar og allt þar til á þessari stundu hefur gengið mjög vel"

Heimsmeistaramótið hefst eftir 6 mánuði og má búast við því að þjálfari liðsins verði undir mikilli pressu frá kínverska sambandinu þar sem þeir setja markmiðið á undarúrslit að minnsta kosti.

Marika svarar því: ,,Ég var undir mikilli pressu þegar ég þjálfaði sænska liðið til úrslita á síðasta Heimsmeistaramóti, svo að ég veit ég get klárlega tekið þessu öllu"

Mariku var nýlega lýst í kínverskum blöðum sem ,,Harðari en nokkur annar karlaþjálfari," sem leiddi lið sitt til úrslita Heimsmeistaramótsins en tapaði á móti Þýskalalndi.

Hún hætti að þjálfa sænska liðið eftir HM 2003 en hefur verið að þjálfa sænska U-21 liðið undanfarið.

Í síðustu viku kom kínverska liðið heim frá Evrópu þar sem það hafði tapað 6 leikjum í röð þar á meðal gegn Finnlandi og síðan völtuðu íslensku stelpurnar yfir þær með 4-1 sigri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.