Fotbolti.net
27.03.08 - 13:01
Magnús Már Einarsson

Eyþór Guðnason í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Eyþór (til hægri) ásamt Gunnari Guðmundssyni þjálfara HK.

Eyþór (til hægri) ásamt Gunnari Guðmundssyni þjálfara HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Víkingur Ólafsvík hefur fengið framherjann Eyþór Guðnason frá HK og hefur hann gert samning um að leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Eyþór, sem er 32 ára gamall, lék fimm leiki í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar. Hann lék einnig með HK í fyrstu deildinni sumarið 2005.

Sumarið 2006 lék hann hins vegar með með Njarðvík í annarri deildinni og skoraði átta mörk en hann hefur mest allan sinn feril leikið með Njarðvíkingum.

Eyþór mun leika sinn fyrsta leik með Víkingi á föstudagskvöldið þegar að liðið mætir Grindavík í Lengjubikarnum. Hann fer síðan í kjölfarið með Víkingi í æfingaferð til Tyrklands á laugardag.

Þetta er þriðji leikmaðurinn sem Víkingur fær fyrir komandi átök í fyrstu deildinni en fyrr í vetur gekk Alfreð Elías Jóhannsson til liðs við félagið og hann hefur skorað grimmt í æfingaleikjum og í Lengjubikarnum.

Á dögunum kom síðan miðjumaðurinn Miroslav Pilipovic til Víkinga frá Slóveníu en hann hefur þegar leikið tvo leiki með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.