27.03.08 - 14:46
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Hauksson lánaður úr Val í Fjölni (Staðfest)
Má spila gegn Val í sumar og er hjá Fjölni út tímabilið

Kristján Hauksson í leik með Fram í bikarnum í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Kristján Hauksson hefur verið lánaður úr Val til Landsbankadeildarfélags Fjölnis en þetta staðfesti Ásmundur Arnarsson þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Ásmundur sagði að engar klásúlur séu í samningi Kristjáns, og því megi hann spila gegn Valsmönnum í tveimur innbyrðis viðureignum liðanna í Landsbankadeildinni í sumar. Auk þess er ekkert ákvæði um að hægt sé að kalla hann til baka í sumar, samningurinn er fastur út tímabilið.
Kristján gekk í raðir Vals frá Fram síðastliðið haust en Valsmenn verða með óbreyttan mannskap frá síðustu leiktíð og því hefði hann þurft að berjast við Barry Smith og Atla Svein Þórarinsson um byrjunarliðsstöðuna í Fram.
Kristján vermdi varamannabekkinn hjá Fram framan af sumri í fyrra og fékk fá tækifæri þar til Eggert Stefánsson meiddist snemma í júní mánuði og ákvað að leggja skóna á hilluna.
Frá þeim tíma leysti Kristján miðvarðarstöðuna hjá Fram og átti marga frábæra leiki í vörn liðsins og var meðal annar einu sinni valinn leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net.
Hann á að baki 33 leiki í Landsbankadeildinni auk þes sem hann lék 9 leiki með Fram í 1. deildinni í fyrra en meiddist og náði því ekki að klára tímabilið. Hann hóf feril sinn með meistaraflokki Fram sumarið 2003 en á síðasta sumri var hann valinn efnilegasti leikmaður liðsins hjá Fram.