27.03.08 - 15:07
Hörður Snævar Jónsson
Arnar Darri Pétursson í Lyn (Staðfest)

Arnar Darri er í efri línu, lengst til vinstri.

Mynd: Myndasafn KSÍ

Arnar Darri Pétursson, 17 ára markvörður úr Stjörnunni og yngri landsliðum Íslands í knattspyrnu, skrifaði í gær undir samning við norska úrvalsdeildarfélagið Lyn til þriggja ára, eða til ársloka 2010. Þetta kom fram í Morgunblaðinu í morgun.
Norska félagið hefur sótt hart að fá Arnar í sínar raðir frá því hann fór þangað til reynslu fyrr í vetur og náði loks samkomulagi um félagaskiptin við Stjörnuna á dögunum.
Arnar Darri, sem varð 17 ára fyrr í þessum mánuði, þykir einn efnilegasti markvörður sem komið hefur fram hér á landi á síðari árum.
Hann var aðalmarkvörður U17 ára landsliðsins í fyrra og spilaði alla 7 leiki þess, og er nú í úrtakshópi U19 ára landsliðsins.
Hann kemur inn sem þriðji markvörður Lyn til að byrja með og spilar væntanlega talsvert með varaliði félagsins í 2. deildinni í ár.
Að sögn Ólafs Garðarssonar umboðsmanns, sem gekk frá málum með Arnari í
gær, fer hann þó með aðalliði Lyn í fyrsta leik úrvalsdeildarinnar á mánudaginn, gegn Rosenborg í Þrándheimi.
Með Lyn leika einnig þeir Theódór Elmar Bjarnason og Indriði Sigurðsson.