27.03.08 - 20:54
Magnús Valur Böðvarsson
Ásgeir Örn í Magna Grenivík (Staðfest)

Úr leik Hauka og Magna Grenivík

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Úr leik Hauka og Magna Grenivík

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Ásgeir Örn Jóhannsson 28 ára gamall sóknarmaður hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Magna frá Grenivík en hann kemur til liðsins frá Hvöt.
Ásgeir Örn átti stóran þátt í að koma Magna upp um deild árið 2006 en þá skoraði hann tíu mörk í fimmtán leikjum í þriðju deildinni en liðið hélt sæti sínu í 2.deildinni á síðasta ári.
Ásgeir átti einnig stóran þátt í að koma Hvöt uppúr þriðju deildinni síðastliðið sumar en þá skoraði hann fimm mörk í 19 leikjum. Hann hefur hins vegar snúið aftur til Grenivíkur og mun leika með liðinu í sumar.
Þá hafa sjö aðrir leikmenn skrifað undir samning við Magna að undanförnu en þetta eru Jón Indriðason, Georg Haraldsson, Friðrik Friðriksson, Birkir Björgvinsson, Kristófer Jónasson, Kristján Ragnarsson og Egill Angantýsson.
Þá hefur liðið tekið í notkun nýja heimasíðu en slóðin á nýju heimasíðu Magnamanna er http://www.magnigrenivik.is.