27.03.08 - 22:55
Magnús Már Einarsson
Henning úr KR í Selfoss (Staðfest)

Henning í leik með Selfyssingum.

Mynd: Guðmundur Karl

Henning í baráttu við Dario Cingel í leik með KR í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Henning í leik með Selfyssingum.

Mynd: Guðmundur Karl
Selfyssingar fengu í dag góðan liðsstyrk þegar Henning Jónasson kom til þeirra frá KR. Henning lék fimm leiki í Landsbankadeildinni með KR síðastliðið sumar og skoraði í þeim eitt mark, en í félagsskiptaglugganum var hann lánaður í Selfoss og átti mikinn þátt í að hjálpa liðinu að komast upp í 1.deild.
Henning, sem er 24 ára kemur úr yngri flokka starfi Selfoss en hefur leikið með KR, Þrótturum og Aftureldingu, ásamt því að hafa leikið knattspyrnu í Bandaríkjunum síðastliðinn vetur.
Nokkur lið voru á eftir Henning og má ljóst vera að þetta mun styrkja Selfoss í baráttunni í 1.deild á komandi sumri og jafnvel strax á morgun, því hann verður kominn með leikheimild þegar Selfyssingar mæta Valsmönnum í Egilshöll föstudag kl 21.00 í Lengjubikarnum.
Ómar Valdimarsson aðstoðarþjálfari Selfoss var að vonum ánægður að hafa náð að landað Henning.
,,Henning er mikill fengur fyrir okkar lið, hann er góður í loftinu, sterkur maður á mann og með góða sendingatækni," sagði Ómar Valdimarsson í stuttu spjalli við Fótbolta.net.
,,Það er hægt að láta hann spila fleiri en eina stöðu sem er góður kostur. Þetta er strákur með úrvalsdeildar reynslu, sem er mikilvægt fyrir okkar unga lið."
Henning var ánægður með að félagsskiptin væru loksins í höfn. ,,Ástæðan fyrir því að ég valdi Selfoss er trú mín á verkefninu. Zoran og Ómar eru að gera mjög flotta hluti hérna og sennilega besta þjálfara-team sem ég hef haft."
,,Þetta er allavega fótbolti sem hentar mínum leikstíl og bara gaman fyrir stuðningsmenn Selfoss að fá að horfa á góðan fótbolta í sumar," sagði Henning Jónasson ánægður að vera kominn heim.