27.04.10 - 10:20
Magnús Már Einarsson
Robbie Fowler til Perth Glory (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Framherjinn reyndi Robbie Fowler hefur samið við Perth Glory í Ástralíu.
Þessi 35 ára gamli leikmaður verður aðalleikmaður Perth sem þýðir að laun hans mega vera hærri en launaþakið í áströlsku deildinni segir til um.
Fowler hefur leikið í Ástralíu frá því í febrúar 2009 en hann hætti á dögunum hjá North Queensland Fury eftir að hafa skorað 9 mörk í 26 leikjum með liðinu.
Fowler hefur leikið lengst af á ferli sínum með Liverpool þar sem hann er í miklum metum.
Þá hefur Fowler einnig leikið með Leeds United, Manchester City, Cardiff City og Blackburn en hann er fjórði markahæsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 163 mörk.

Heimild: BBC