Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Rekinn sólarhring eftir tapið gegn erkifjendunum (Staðfest)
Mynd: EPA
Ítalski-þýski þjálfarinn Domenico Tedesco hefur verið rekinn frá Fenerbahce aðeins sólarhring eftir vandræðalega 3-0 tapið gegn erkifjendunum í Galatasaray.

Liðin voru að mætast í stærsta leik tímabilsins í tyrknesku deildinni en aðeins fjögur stig skildu liðin að í titilbaráttunni og því allt undir, og sérstaklega hjá Fenerbahce sem var í öðru sæti deildarinnar.

Galatasaray vann sannfærandi 3-0 sigur þar sem Victor Osimhen, Bans Yilmaz og Lucas Torreira skoruðu mörkin. Ederson, markvörður Fenerbahce, sá þá rautt spjald hálftíma fyrir leikslok.

Stjórn Fenerbahce fundaði um stöðu Tedesco í dag og tók þá ákvörðun að sparka honum og þjálfarateymi hans. Einnig voru Devin Özek, yfirmaður fótboltamála, og Berke Celebi, yfirmaður skipulagsmála, látnir fara.

Fenerbahce þakkar þeim fyrir framlag þeirra til félagsins og óskar þeim góðs gengis í framtíðinni.

Zeki Murat Göle, aðstoðarþjálfari liðsins, mun stýra liðinu í síðustu leikjum tímabilsins.


Slapp
banner
banner