27.05.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Reto Ziegler til Juventus (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Juventus hefur keypt svissneska vinstri bakvörðinn Reto Ziegler frá Sampdoria sem féll úr Serie A á dögunum.
Þessi fyrrum leikmaður Tottenham hefur skrifað undir samning við Juventus til ársins 2015.
Þessi fyrrum leikmaður Tottenham hefur skrifað undir samning við Juventus til ársins 2015.
Juventus endaði í sjöunda sæti í Serie A og missti af Evrópusæti í ár en félagið fékk fyrr í vikunni Andrea Pirlo frá AC Milan.
Luigi Del Neri var rekinn úr þjálfarastólnum í síðustu viku en Antonio Conte mun líklega taka við starfinu á næstunni.
Luigi Del Neri var rekinn úr þjálfarastólnum í síðustu viku en Antonio Conte mun líklega taka við starfinu á næstunni.
Heimild: Reuters
