Manchester United hefur játað sig sigrað í baráttunni um enska landsliðsmanninn Elliot Anderson. Mirror greinir frá.
Man Utd og Manchester City voru í kapphlaupi um Anderson, sem hefur skinið skært hjá Nottingham Forest.
Anderson var aðalskotmark United fyrir sumargluggann en félagið er ekki reiðubúið að borga 100 milljóna punda verðmiðann sem Evangelos Marinakis og félagar hjá Forest hafa sett á leikmanninn.
United er einnig meðvitað um að nágrannarnir í Man City leiða kapphlaupið þrátt fyrir að Pep Guardiola sé að yfirgefa félagið í sumar.
Enzo Maresca mun taka við Man City og hefur gefið grænt ljós á að fá Anderson.
Man City vill ganga frá kaupunum á Anderson fyrir HM en Forest veit vel að verðmiðinn gæti hækkað verulega ef miðjumaðurinn á gott mót með Englendingum. Forest mun ekki standa í vegi fyrir Anderson ef hann vill fara, en það yrði á forsendum félagsins.
Anderson, sem er 23 ára, kom til Forest frá Newcastle United fyrir 35 milljónir punda árið 2024. Hann er einn besti miðjumaður ensku úrvalsdeildarinnar í dag og búist er við að hann verði fastamaður í byrjunarliði enska landsliðsins á HM.


