Fotbolti.net
27.06.07 - 19:21
Arnar Geir Halldórsson

Liverpool fær markvörð frá Búlgaríu (Staðfest)

Nikolay Mihaylov

Nikolay Mihaylov

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur keypt Nikolay Mihaylov markmann U-21 árs landsliðs Búlgaríu.
Mihaylov kemur frá búlgörsku meisturunum í Levski Sofia og skrifar undir þriggja ára samning með möguleika á tveggja ára framlengingu.

,,Ég er orðlaus. Þetta er það besta sem hefur komið fyrir mig á minni ævi." sagði þessi 18 ára markvörður.

Mihaylov er stór og stæðilegur þrátt fyrir ungan aldur en hann er 194 sentimetrar á hæð og á að baki 14 leiki fyrir U-21 árs landsliðið og 9 leiki með aðalliði Levski Sofia.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.