Fotbolti.net
27.06.08 - 16:43
Hörður Snævar Jónsson

Johan Elmander í Bolton (Staðfest)

Elmander í leik gegn Íslendignum.

Elmander í leik gegn Íslendignum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Bolton hefur gengið frá kaupunum á Johan Elamnder frá Toulouse í Frakklandi en kaupverðið er ekki gefið upp.
Elmander skrifaði undir þriggja ára samning við Bolton í dag en þessi sænski landsliðsmaður hefur gert það gott í Frakklandi.

,,Johan er leikmaður sem ég hef lengi verið hrifinn af, hann er leikmaður sem mun færa okkur mörk og búa þau til,\" sagði Gary Megson stjóri liðsins.

,,Ég er ennþá að leita að leikmönnum sem munu gera hópinn okkar betri\"

Hjá Bolton eru tveir Íslendingar þeir Grétar Rafn Steinsson og Heiðar Helguson en framtíð hans er í óvissu hjá félaginu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.