27.06.09 - 07:00
Gunnar Gunnarsson
Javier Saviola til Benfica (Staðfest)
sá argentíski á leið til Portúgals eftir tveggja ára dvöl hjá Real Madrid

Javier Saviola vonast eftir betri tíð með blóm í haga hjá Benfica en leikmaðurinn náði sér aldrei á strik með Real Madrid enda fékk hann ekki mörg tækifæri þar á bæ.

Mynd: Getty Images

Benfica hefur staðfest kaup sín á argentíska sóknarmanninum, Javier Saviola frá Real Madrid en félagið er talið greiða um 5 milljónir evra fyrir kappann.
Hinn 27 ára gamli Saviola mun fljúga til Lissabon á næstu dögum og skrifa undir þriggja ára samning við félagið að því gefnu að hann standist læknisskoðun.
Saviola mun hitta fyrir félaga sinn Pablo Aimar hjá Benfica en þeir spiluðu saman við góðan orðstír hjá River Plate.
Saviola vonast til að hefja feril sinn aftur upp til vegs og virðingar eftir afar misheppnaða dvöl hjá Real Madrid síðustu tvö ár.
Eftir að hafa komið til spænsku höfuðborgarinnar á frjálsri sölu frá Barcelona hefur Saviola fengið afar fá tækifæri með liði Real Madrid.
Hann þurfti lengst af að sitja á tréverkinu undir stjórn Bernd Schuster en ekki tók betri tíð við þegar Juande Ramos kom til félagsins því þá var hann ekki einu sinni í leikmannahópnum.

Heimild: Goal.com