Fotbolti.net
27.06.11 - 10:28
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Domenico Criscito til Zenit (Staðfest)

Criscito er hér að kljást við David Beckham.

Criscito er hér að kljást við David Beckham.

Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska stórliðið Zenit frá Pétursborg hefur krækt í vinstri bakvörðinn Domenico Criscito frá Genoa. Criscito á 15 A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu ásamt því að hafa leikið fyrir öll yngri landslið þjóðarinnar.
Hann hefur einnig leikið fyrir Juventus í ítölsku A-deildinni en búist var við því að hann myndi ganga til liðs við Napoli í sumar.

Hann náði ekki samkomulagi við Napoli um persónuleg kjör og Luciano Spalletti var vel á verði og krækti í leikmanninn.

Criscito sem er 25 ára var einnig orðaður við Inter og PSG en Zenit reyndi að kaupa hann í janúarglugganum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.