27.06.11 - 20:56
Magnús Már Einarsson
Hólmar Örn til Bochum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Hólmar Örn Eyjólfsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við þýska félagið Bochum.
Bochum leikur í næst efstu deild í Þýskalandi en tapaði á nýafstöðnu tímabili í umspilinu um að komast upp.
Hólmar gekk í raðir West Ham frá HK árið 2008 en spilaði ekki aðalliðsleik hjá Hömrunum.
Hann fór á tíma sínum á láni til Roeselare í Belgíu og Cheltenham í neðri deildum á Englandi.
,,Maður fer þarna til að berjast um að vera í byrjunarliðinu og spila alvöru fótbolta. Það er það sem maður þarf að gera,\" sagði Hólmar við Fótbolta.net á dögunum þegar ljóst var að hann væri á leið til Bochum.
Friedhelm Funkel, þjálfari Bochum, er spenntur fyrir að fá Hólmar Örn til félagsins.
,,Auðvitað þarf hann einhvern tíma til að aðlagast fótboltanum í Þýskalandi en ef það gerist þá kemur hann til greina í byrjunarliðið í miðri vörninni,\" sagði Funkel á heimasíðu Bochum í kvöld.

Heimild: Heimasíða Bochum