Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 08:51
Elvar Geir Magnússon
Alexander Máni kynntur hjá Midtjylland (Staðfest)
Alexander Máni kynntur hjá Midtjylland.
Alexander Máni kynntur hjá Midtjylland.
Mynd: Midtjylland
Mynd: Stjarnan
Stjörnumaðurinn Alexander Máni Guðjónsson hefur verið kynntur hjá danska félaginu Midtjylland en Fótbolti.net greindi frá því fyrr í þessum mánuði að hann myndi ganga í raðir félagsins.

Alexander varð sextán ára gamall á dögunum og skrifaði í kjölfarið undir samning.

Á heimasíðu Midtjylland segir Jacob Larsen, yfirmaður akademíu félagsins, að fylgst hafi verið gaumgæfilega með leikmanninum og hann fór til reynslu og lék með yngri liðum félagsins.

„Alexander er einn af okkar efnilegu leikmönnum og hefur alla burði til þess að ná lengra. Danirnir eru svo sannarlega að næla sér í bæði frábæran leikmann og karakter og hlökkum við mikið til þess að fylgjast með honum frá Íslandi. Við óskum okkar manni góðs gengis í nýrri áskorun," segir í tilkynningu frá Stjörnunni.

Þar eru einnig ummæli frá þessum efnilega leikmanni:

„Ég vil þakka öllum hjá Stjörnunni fyrir ómetanlegan tíma og stuðning síðustu ár. Frá því ég steig mín fyrstu skref með félaginu hef ég fengið að þróast sem leikmaður og manneskja – umkringdur frábærum þjálfurum, liðsfélögum og fólki sem hefur alltaf trúað á mig. Nú tekur við nýr kafli. Takk fyrir mig,” segir Alexander Máni um vistaskiptin.

Hann er er sonur framherjans Guðjóns Baldvinssonar, þreytti frumraun sína með Stjörnunni í fyrra og var á blaði hjá stórum félögum erlendis. Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, ræddi nýlega við Fótbolta.net um leikmanninn.

„Hann er efnilegur og góður í mörgu, en hans sterkasti eiginleiki er karakterinn. Það er það sem fær mann til að hafa mikla trú á honum upp á hans feril. Hann er mjög sterkur karakter, mikil orka og útgeislun í kringum hann, hjálpar liðinu og vinnur fyrir það. Hann er með frábær hlaup, tæknilega góður og frábær í að klára færi. Hann er með allt þetta sem þarf, en hann er með hitt sem mér finnst mikilvægara. Það er það sem er stærri faktor og mjög gaman að sjá það," sagði Jökull.


Athugasemdir
banner
banner