Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
banner
   fös 27. júní 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Allir að hafna Newcastle
Mynd: EPA
Newcastle hefur gengið afskaplega illa á félagaskiptamarkaðnum í sumar.

Eddie Howe vonaðist til að geta klárað félagaskiptin snemma en félagið er í miklum vandræðum með að fá samþykkt tilboð í leikmenn.

Nottingham Forest hefur hafnað 45 milljón punda tilboði í Anthony Elanga. Þá hefur félaginu mistekist að næla í James Trafford og Joao Pedro eins og er.

Burnley hafnaði 25 milljón punda tilboði í markvörðinn Trafford en Fabrizio Romano greinir frá því að viðræðurnar muni halda áfram.

Þá hafnaði Brighton 50 milljón punda tilboði í framherjann Joao Pedro.
Athugasemdir
banner