Daniel Obbekjær hefur yfirgefið Breiðablik og er haldin aftur til Færeyja en þaðan kom hann til Breiðabliks fyrir síðasta tímabil.
Obbekjær er danskur miðvörður sem stóð sig vel í þeim leikjum sem hann spilaði á síðasta tímabili þegar Breiðablik varð Ísandsmeistari.
Hann hefur ekki verið í liðinu framan af þessu tímabili og setti í dag inn færslu á Instagram þar sem hann er að kveðja Ísland og hefja nýjan kafla.

Hann er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga í raðir NSÍ Runavíkur í Færeyjum. Þar hittir hann fyrir fyrrum leikmann Breiðabliks, markamaskínuna Klæmint Olsen, sem lék með Breiðabliki 2023.
Obbekjær er 22 ára. Hann lék fjölda leikja fyrir yngri landslið Danmerkur en hann er alinn upp hjá OB. Hann lék 16 leiki með Breiðabliki og skoraði í þeim þrjú mörk. Hann kom við sögu í fjórum deildarleikjum og báðum bikarleikjunum á þessu tímabili.
Athugasemdir