Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heaton tekur annað tímabil með Man Utd (Staðfest)
Mynd: Manchester United
Manchester United hefur framlengt samninginn við Tom Heaton út komandi tímabil.

Heaton verður áfram í hlutverki reynslubolta í leikmannahópi United.

Hann er 39 ára gamall og sagði eftirfarandi í kjölfar tíðindanna: „Ég er ótrúlega stoltur að fá að vera áfram hjá United. Sem hópur, þá erum við virkilega spenntir fyrir komandi tímabili."

„Ég er tilbúinn í að styðja við liðið á alla vegu á þeirri vegferð að berjast aftur um stærstu titlana."

Heaton sneri aftur til United árið 2021 eftir ellefu ár í burtu. Hann hefur síðan spilað þrjá aðalliðsleiki, spilað í deildabikarnum og Meistaradeildinni.

Síðustu tvö tímabil hefur hann verið þriðji markmaður á eftir Andre Onana og Altay Bayindir.
Athugasemdir
banner
banner