Brentford hefur ráðið Keith Andrews sem aðalþjálfara liðsins og gerir við hann þriggja ára samning í því starfi. Það er Sky Sports sem greinir frá þessum tíðindum, Andrews verður formlega kynntur seinna í dag.
Hann tekur við starfinu af Thomas Frank sem var fyrr í þessum mánuði keyptur til Tottenham.
Hann tekur við starfinu af Thomas Frank sem var fyrr í þessum mánuði keyptur til Tottenham.
Andrews er að fá mikla stöðuhækkun hjá Brentford en hann var áður sérfræðingur í föstum leikatriðum í teymi Frnak.
Brentford ræddi við fleiri aðila, stærri prófíla, um starfið en Andrews fékk traustið. Brentford fór sömu leið þegar Frank fékk starfið hjá félaginu eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari til að byrja með.
Andrews bíður ærið verkefni að feta í fótspor Frank sem gerði frábæra hluti með liðið. Brentford endaði í 10. sæti deildarinnar í fyrra en er að öllum líkindum að missa sinn besta leikmann því Bryan Mbeumo virðist vera á leið til Manchester United.
Athugasemdir