Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
banner
   fös 27. júní 2025 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lille nálægt samkomulagi um 38 ára Giroud
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano tekur undir fregnir þess efnis að hinn 38 ára gamli Olivier Giroud sé á leið aftur heim til Frakklands.

Þar verður hann samherji Hákons Arnars Haraldssonar hjá Lille.

Giroud er með samning við Los Angeles FC sem gildir út árið, en bandaríska félagið er með möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár.

Lille þarf því að ná samkomulagi við Los Angeles um kaupverð, en Fabrizio Romano segir að samkomulag sé í höfn.

Giroud, sem verður 39 ára í september, er gríðarlega spenntur fyrir því að snúa aftur til Evrópu.

Lille endaði í fimmta sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tryggði sér þannig þátttökurétt í Evrópudeildinni fyrir komandi haust. Hákon og félagar voru óheppnir að ná ekki í Meistaradeildarsæti eftir slakt gengi í lokaumferðum tímabilsins.

Giroud skoraði 57 mörk í 137 landsleikjum fyrir Frakkland. Hann vann HM 2018 með þjóð sinni og var einnig með þegar Frakkar hrepptu silfurverðlaun á HM 2022 og EM 2016.

Uppfært 20:30 „Here we go!" frá Fabrizio Romano.
Athugasemdir
banner