„Það er mjög skemmtilegt að hafa skrifað undir hjá Djurgarden og ég hef verið gríðarlega spenntur fyrir því að koma hingað. Nú er ég loks mættur og er hrifinn af því sem ég hef séð af Stokkhólmi og hversu gott æfingasvæðið er," segir íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Anderson við heimasíðu Djurgarden.
„Þetta er stór klúbbur með mikinn metnað og ég er með mikla einbeitingu á að ná sigrum. Liðið hefur ekki byrjað tímabilið að óskum en það er enn nóg af stigum í pottinum. Við getum klárlega komist á rétta braut og ég vil hjálpa liðinu að klifra upp töfluna."
Mikael hefur skrifað undir samning við sænska félagið til 2029 en hann er keyptur frá danska úrvalsdeildarfélaginu AGF.
Í viðtali við heimasíðu Djurgarden kemur hann einnig inn á íslenska landsliðið en Mikael á 33 landsleiki fyrir Ísland og 2 mörk. Hann er 26 ára en lék á sínum tíma fyrir yngri landslið Danmerkur.
„Á endanum var eðlilegt val að spila fyrir Ísland því rætur mínar eru þar. Ég vissi líka að það myndi gera afa og ömmu stolt og ég elska að spila fyrir þjóð mína. Ég er mjög stoltur af því að spila fyrir Ísland og vona að ég haldi áfram að gera það meðan ég er hjá Djurgarden."
Djurgarden kaupir hann á tvær milljónir evra en það var riftunarákvæðið í samningi Mikaels við danska félagið AGF. Djurgarden fór alla leið í undanúrslit Sambandsdeildarinnar í vor, en tapaði þar gegn verðandi meisturum í Chelsea. Liðið hefur byrjað þetta tímabil illa í deildinni, er einungis í níunda sæti þegar mótið er tæplega hálfnað.

?? Välkommen till Stockholms Stolthet! pic.twitter.com/ndOTNfiYHz
— Djurgården Fotboll (@DIF_Fotboll) June 27, 2025
Athugasemdir