Ruud van Nistelrooy, stjóri Leicester City, hefur yfirgefið liðið í kjölfar þess að það féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Í yfirlýsingu segir að aðskilnaðurinn hafi verið samkvæmt samkomulagi beggja aðila en enskir fjölmiðlar segja að Nistelrooy hafi einfaldlega verið rekinn. Leicester gat ekki sagt honum upp fyrr vegna áhrifa á fjármálarútreikninga félagsins, sem endurnýjast 1. júlí.
Félagið hefur ekki tilkynnt hver muni taka við stjórastöðunni en nokkur nöfn hafa verið í umræðunni, þar á meðal Sean Dyche og Danny Rohl.
Van Nistelrooy tók við stjórn liðsins í nóvember í stað Steve Cooper en náði ekki að halda liðinu uppi í úrvalsdeildinni. Hollendingurinn hafði náð áhugaverðum úrslitum sem bráðabirgðastjóri Manchester United og það vakti áhuga Leicester.
Athugasemdir