Fotbolti.net
27.07.06 - 14:59
Magnús Már Einarsson

Jóhann Ólafur lánaður til Gróttu (Staðfest)

Jóhann Ólafur í leik gegn FH.

Jóhann Ólafur í leik gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Grótta hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í þriðju deildinni en liðið hefur fengið markvörðinn Jóhann Ólaf Sigurðsson að láni frá Fylki.
Jóhann Ólafur sem er uppalinn á Selfossi kom við sögu í þremur leikjum hjá Fylki í upphafi sumars þegar Fjalar Þorgeirsson og Bjarni Þórður Halldórsson voru báðir meiddir.

Hann hefur hins vegar ekki verið í leikmannahópnum að undanförnu þar sem Fjalar og Bjarni hafa verið og því hefur Jóhann gengið til liðs við Gróttu sem er í efsta sæti í A-riðli þriðju deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.