Fotbolti.net
27.07.06 - 16:29
Magnús Már Einarsson

Vorenkamp frá ÍBV til Fram (Staðfest)

Vorenkamp í leik gegn Grindavík í sumar.

Vorenkamp í leik gegn Grindavík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

Varnarmaðurinn Christopher Steven Vorenkamp hefur yfirgefið herbúðir ÍBV og gengið til liðs við Fram sem er á toppnum í fyrstu deildinni.
Chris eins og hann er kallaður kemur frá Bandaríkjunum en hann kom til ÍBV fyrir lokaumferðirnar í fyrra. Í ár hefur hann síðan leikið sjö leiki í Landsbankadeildinni en hann hefur ekki komið svið sögu í síðustu tveimur leikjum liðsins.

Chris er þegar kominn með leikheimild með Frömurum og getur því leikið með liðinu gegn KA í fyrstu deildinni annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.