Fotbolti.net
27.07.07 - 18:55
Sindri Þór Þorgeirsson
Ítalska deildin

Cristian Chivu til Internazionale (Staðfest)

Chivu mun spila í bláu og svörtu í vetur

Chivu mun spila í bláu og svörtu í vetur

Canon

Mynd: Getty Images

Ítölsku meistararnir í Inter hafa fest kaup á rúmenska landsliðsmanninum Cristian Chivu frá Roma.
Chivu skrifaði undir 4 ára samning og kaupverðið á honum er talið vera 13 milljónir evra auk þess sem U-21 árs landsliðmaðurinn Marco Andreolli fer í hina áttina.

,, Ég er að fara til Inter. Ég hef átt fjögur frábær ár hjá Roma þar sem ég hef vaxið sem leikmaður og manneskja. Roma munu alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu en ég hef ákveðið að prófa eitthvað nýtt,” sagði Chivu

Chivu var keyptur til Roma frá Ajax árið 2003 fyrir 18 milljónir evra og var mikilvægur hlekkur í vörn liðsins. Hann spilaði sinn fimmtugasta landsleik fyrir Rúmeníu í síðasta mánuði.

Eins og fram kom mun Andreolli fara í hina áttina en Roma hafa keypt helming í honum og hann skrifaði undir 4 ára samning við Roma í gærkvöldi.

Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í U-21 árs landsliði Ítala og spilaði alla leiki þess í Evrópukeppninni í sumar sem fram fór í Hollandi.


Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.