Fotbolti.net
27.07.07 - 20:41
Hafliði Breiðfjörð

Henning Jónasson lánaður frá KR til Selfoss (Staðfest)

Henning í leik með KR gegn ÍA fyrr á leiktíðinni.

Henning í leik með KR gegn ÍA fyrr á leiktíðinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Framherjinn Henning Eyþór Jónasson hefur verið lánaður frá KR til Selfoss út tímabilið en honum hefur gengið erfiðlega að vinna sér sæti í liði KR í sumar og aðeins komið við sögu í fimm af 11 leikjum liðsins og skorað í þeim eitt mark.
Henning sem er 23 ára gamall lék ekkert síðasta sumar en hann hefur verið við nám í skóla í Greensboro í Bandaríkjunum.

Árið 2005 lék hann með Þrótti í Landsbankadeildinni og skoraði þá eitt mark í fimm leikjum með liðinu. Hann hafði verið hjá KR frá árinu 2000 til 2004 þar sem hann kláraði 2. flokkinn hjá liðinu.

Árið 2003 var hann í láni hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ þar sem hann skoraði fjögur mörk í 16 leikjum í 1. deild.

Hann kom til KR frá Selfossi árið 2000 en fyrir leiktíðina hafði hann einnig sýnt því áhuga að fara til Selfoss en valdi KR og hefur nú verið lánaður til Selfoss.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.