27.07.09 - 16:44
Magnús Valur Böðvarsson
Gunnleifur Gunnleifsson aftur í HK (Staðfest)

Gunnleifur í leik með HK á seinasta ári

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Gunnleifur í leik með HK á seinasta ári

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Landsliðsmarkvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson hefur loksins fengið leikheimild með HK og verður löglegur með liðinu frá og með morgundeginum.
Gunnleifur missir þó af leik liðsins við Víking Ólafsvík í kvöld. Fyrsti leikur Gunnleifs verður þá væntanlega á móti nágrönnunum í Breiðablik en liðin mætast á fimmtudagskvöld í Visa bikarnum.
Gunnleifur var lánaður til FC Vaduz í svissnesku deildinni en liðið féll úr úrvalsdeildinni í vor.
Í síðustu viku var Gunnleifur síðan á reynslu hjá Lilleström í Noregi en hann kom aftur til landsins í gær.