27.07.09 - 18:13
Magnús Már Einarsson
Zlatan Ibrahimovic til Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Barcelona hefur fengið Zlatan Ibrahimovic frá Inter en sænski framherjinn skrifaði undir fimm ára samning við Evrópumeistarana nú undir kvöld.
Zlatan fór í læknisskoðun í dag þar sem að í ljós kom að hann er með brotið bein í vinstri hendi en hann varð fyrir meiðslunum í æfingaleik með Inter í síðustu viku.
,,Þetta er brot sem við verðum að skoða og sjá hvernig við getum lagað það þannig að hann geti spilað sem fyrst,\" sagði læknir Barcelona.
Samuel Eto´o fer til Inter sem hluti af kaupverðinu en hann er búinn að standast læknisskoðun hjá Ítalíumeisturunum.
Eto´o átti einungis eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelona og því var Barcelona tilbúið að leyfa honum að fara.
Barcelona borgar einnig 40 milljónir punda til að fá Zlatan og þá gæti Alexander Hleb einnig farið til Inter á láni sem hluti af samningnum.
Zlatan, sem er 27 ára, hefur leikið með Inter undanfarin þrjú ár en hann var áður í herbúðum Juventus.
Á síðustu leiktíð skoraði hann 29 mörk í öllum keppnum og hjálpaði Inter að verða Ítalíumeistari.

Heimild: BBC