27.07.09 - 22:24
Magnús Már Einarsson
Peter Crouch til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur gengið frá kaupunum á Peter Crouch framherja Portsmouth.
Þessi 28 ára gamli leikmaður er búinn að standast læknisskoðun og gera fimm ára samning við Tottenham en talið er að hann muni fá 70 þúsund pund í vikulaun.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en það er líklega í kringum tíu milljónir punda.
Portsmouth segir á heimasíðu sinni að félagið hafi neyðst til að selja Crouch vegna fjárhagslegra vandræða.
Crouch skoraði sextán mörk á síðustu leiktíð en hann hafnaði Sunderland í síðustu viku og ákvað frekar að ganga í raðir Tottenham.

Heimild: BBC