Fotbolti.net
27.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jay Emmanuel-Tomas til Ipswich (Staðfest)

Jay Emmanuel-Tomas til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ipswich Town hefur keypt Jay Emmanuel-Thomas framherja Arsenal en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi tvítugi leikmaður er uppalinn hjá Arsenal en hann á fimm leiki að baki með aðalliðinu.

Síðustu tvö tímabil hefur hann farið til Blackpool, Doncaster og Cardiff á láni en hann skoraði tvö mörk í sjö byrjunarliðsleikjum með síðastnefnda liðinu.

,,Ég þurfti að taka ákvörðun og Ipswich virtist vera rétti staðurinn fyrir mig,\" sagði Emmanuel-Thomas.

,,Ég átti góðan tíma hjá Arsenal og ég mun sakna allra strákana en framtíðin snýst um mig og ég þurfti að halda áfram.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.