27.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Steinþór Már í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Dalvík/Reynir í annarri deildinni hefur fengið markvörðinn Steinþór Má Auðunsson til liðs við sig frá Völsungi.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur leikið með Völsungi undanfarin tvö tímabil.
Steinþór hefur í sumar komið við sögu í fimm leikjum en hann hefur verið að berjast við Kjartan Páll Þórarinsson um stöðu í marki Völsungs.
Steinþór er uppalinn hjá KA en hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki þar árið 2007.
Dalvík/Reynir heimsækir Árborg í kvöld og Steinþór gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu þar.