Fotbolti.net
27.07.11 - 20:18
Hafliði Breiðfjörð

Davíð Þór í Fjölni (Staðfest) - ,,Fer ekki til eyja í ár\'\'

Davíð Þór og Ásmundur sameinast að nýju hjá Fjölni.

Davíð Þór og Ásmundur sameinast að nýju hjá Fjölni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Davíð Þór Rúnarsson er genginn til liðs við sitt gamla félag, Fjölni, að nýju en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í kvöld.
Davíð Þór skrifaði í kvöld undir samning við Fjölni sem gildir út þessa leiktíð en hann hefur ekki spilað í deild síðan síðasta sumar þegar hann lék með Sindra í 3. deildinni. Hann hefur þó spilað með Landsliðinu í utandeildinni.

Davíð Þór sem er 33 ára gamall hefur mikla reynslu og hefur leikið 183 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 64 mörk.

Undanfarin tvö ár hefur hann skipt um lið á lokadegi félagskiptagluggans og um Verslunarmannahelgi, 2009 fór hann til Tindastóls og í fyrra til Sindra. Í bæði skiptin var hann kominn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar hann samdi við nýtt lið.

,,Ég fer ekki til eyja í ár svo ég ákvað að drífa í því fyrir helgina,\" sagði Davíð Þór hlæjandi við Fótbolta.net í kvöld aðspurður afhverju hann skipti til Fjölnis í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.