Fotbolti.net
27.07.11 - 23:55
Hafliði Breiðfjörð

Sergio Aguero til Manchester City (Staðfest)

Sergio Aguero til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentíski framherjinn Sergio Aguero gekk í kvöld frá félagaskiptum frá Atletico Madrid á Spáni til enska liðsins Manchester City.
,,Núna er ég City leikmaður,\" staðfesti Aguero á spænsku á Twitter síðu sinni.

,,Ánægður með að vera hjá þessu félagi o gí þessari borg. Þakka öllum fyrir hlýjar móttökur.\"

Þetta kom í kjölfar skilaboða á sama vef þar sem hann hafði fyrr í dag staðfest að vera í Manchester borg í viðræðum við félagið.

Talið er að kaupverðið á honum hafi verið 38 milljónir punda.

Hann er nýkokminn í frí eftir Suður Ameríkubikarinn þar sem lið hans, Argentína, féll út í fjórðungsúrslitum fyrir Úrúgvæ.

Á sama tíma og hann kemur til City er landi hans, Carlos Tevez að reyna að losna frá félaginu og líklegt að hlutverk Aguero verði einmitt að leysa hans hlutverk.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.