27.08.06 - 07:55
Hafliði Breiðfjörð
Andre Bikey lánaður til Reading (Staðfest)

Andre Bikey.

Mynd: Getty Images

Andre Bikey.

Mynd: Getty Images
Reading gengu í gær frá því að kamerúnski landsliðsmaðurinn Andre Bikey mun verða hjá þeim á láni út tímabilið frá Lokomotiv Moskva í Rússlandi. Bikey sem er 21 árs gamall hafði verið í keppnisferð með liðinu á æfingatímabilinu þegar möguleikar hans á að ganga til liðs við félagið dvínuðu er hann var rekinn af velli.
,,Hann gerði vel í Svíþjóð þar til hann féll í áliti þegar hann var rekinn af velli í síðasta leiknum," sagði Steve Coppell á vefsíðu félagsins.
,,En við töldum að það hafi bara gerst því hann hafi verið svo ákveinn í að standa sig. Hann er landsliðsmaður frá Kamerún með góða reynslu svo við vonum að hann nýti sér tækifærið og taki fullan þátt með okkur á tímabilinu."
Reading hafa svo möguleika á að kaupa leikmanninn eftir hvernig honum gengur á meðan tímabilinu stendur. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson leika með Reading auk þes sem Gylfi Þór Sigurðsson er með unglingaliðinu.